Evróputúrinn: Sergio Garcia útnefndur kylfingur ársins
Sergio Garcia hefir verið útnefndur Hilton kylfingur ársins á Evrópumótaröðinni 2017.
Þetta er í fyrsta sinn sem honum hlotnast þessi heiður.
Garcia hefir átt ótrúlegt ár, þar sem honum tókst að sigra í fyrsta sinn í risamóti á ferli sínum, Masters mótinu, auk þess, sem hann sigraði í 2 öðrum mótum.
Hinn 37 ára spænski kylfingur (Garcia) kom sér í gegnum bráðabana í Masters og hafði þar betur gegn Englendingnum Justin Rose, sem einnig hefir átt frábært ár á golfvellinum.
Garcia fetaði þar með í fótspor landa sinna Seve Ballesteros og José María Olazábal.
„Þetta er ótrúlegur heiður“ sagði Garcia, sem giftist einnig kærustu sinni, Angelu Akins í júlí á árinu.. „Ég tel að bæði á og utan vallar hafi þetta verið einstakt og ótrúlegt ár og ár sem ég mun örugglega minnast allt mitt líf.„
„Ég er svo ánægður að hljóta þessi verðlaun og vera útnefndur Hilton kylfingur ársins og gegn þeim leikmönnum, sem komu til greina er ótrúlegt. Tommy (Fleetwood), Justin (Rose), Tyrrell (Hatton) og Jon (Rahm) eru allir frábærir leikmenn og allir hafa átt frábært ár.“
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
