Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 22. 2017 | 18:00

Evróputúrinn: Rose kylfingur októbermánaðar

Justin Rose hefir verið útnefndur Hilton kylfingur októbermánaðar á Evrópumótaröðinni eftir m.a. frábæran sigur á WGC-HSBC Champions.

Rose sagði eftir útnefningunar: „Það er frábært að vera útnefndur Hilton kylfingur októbermánaðar. Sunnudaguinn á WGC-HSBC Champions var svona dagur sem maður vonast eftir og dreymir um. Í hvert sinn sem maður er á toppi skortöflunnar þar sem keppendur eru bestu kylfingar heims, þá gefur það sigri í mótinu en meiri þýðingu.“

Rose sigraði síðan líka á Turkish Airlines Open fyrstu vikuna í nóvember og komst þar með í 2. sæti stigalista Evrópumótaraðarinnar, aðeins eftir efsta manni, Tommy Fleetwood, sem síðan endaði sem stigameistari, en þessi staða hleypti m.a. heldur betur spennu í lokamót Evrópumótaraðarinnar, DP World Tour Championship, í Dubai.

Aðrir sem komu til greina að vera útnefndir sem kylfingur októbermánaðar voru Tyrrell Hatton og hinn írski Paul Dunne.

Hatton sigraði í 2. árið í röð á Alfred Dunhill Championship og sigur Dunne á British Masters er eftirminnilegur vegna lokahrings hans upp á 61 högg, þar sem hann skaut ekki óþekktari kylfingum en Rory McIlroy ref fyrir rass.