Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 20. 2014 | 17:35

Evróputúrinn: Rory og Lowry efstir í Dubai – Hápunktar 1. dags

Það eru þeir Rory McIlroy frá N-Írlandi og Shane Lowry frá Írlandi sem eru efstir og jafnir eftir 1. dag á DP World Tour Championship.

Báðir léku þeir í dag á 6 undir pari, 66 höggum á Jumeirah Golf Estate í Dubaí.

Daninn Thorbjörn Olesen og Skotinn Richie Ramsay deila 3. sætinu, en báðir léku á 5 undir pari, 67 höggum, hvor.

Henrik Stenson og Argentínumaðurinn Emiliano Grillo deila síðan 5. sætinu en þeir léku báðir á 6 undir pari, 68 höggum, hvor.

Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag í Dubaí SMELLIÐ HÉR:

Til þess að sjá hápunkta 1. dags í Dubaí SMELLIÐ HÉR: