
Evróputúrinn: Rory kveður árið 2012 með stæl – með sigri í Dubai!!! – Justin Rose setti nýtt 62 högga vallarmet á Earth Course
Það var Rory McIlroy sem bar sigur úr býtum í Dubai World Tour Championship.
Hann spilaði hringina fjóra á samtals 23 undir pari og spilaði á samtals 265 höggum (66 67 66 66).
Rory átti 2 högg á Englendinginn Justin Rose, sem varð í 2. sæti á 21 höggi undir pari samtals, þ.e. 267 höggum (68 68 69 62).
Rose setti jafnframt glæsilegt nýtt vallarmet á Earth Course, en undanfarna daga höfðu Indverjinn Jeev Milkha Singh og Sergio Garcia jafnað gamla vallarmetið upp á 64 högg, sem þeir deildu með 5 öðrum.
Justin Rose spilaði lokahringinn á Dubai World Tour Championship á 62 glæsihöggum; fékk örn á par-5 14. brautina, 8 fugla og 9 pör – Glæsilegra gerist það varla!!!
Þriðja sætinu deildu Charl Schwartzel frá Suður-Afríku og Luke Donald; voru á samtals 18 undir pari, 270 höggum; Schwartzel (68 67 67 68) og Donald (65 68 66 71). Það má segja að „slakur“ lokahringur Donald upp á 71 högg hafi gert út um sigurvonir hans, en hann var búinn að vera í forystu ásamt Rory mestallt mótið.
Í 5. sæti varð síðan Louis Oosthuizen og í 6. sæti nýliði ársins á Evrópumótaröðinni Branden Grace, en þeir eru báðir frá Suður-Afríku.
Til þess að sjá úrslitin í heild á Dubai World Tour Championship SMELLIÐ HÉR:
- mars. 31. 2023 | 16:30 Gary Player þarf að „grátbiðja“ til að fá að spila á Augusta National
- mars. 26. 2023 | 23:24 PGA: Sam Burns sigraði í WGC-Dell holukeppninni
- mars. 23. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Kristín Sigurbergsdóttir – 23. mars 2023
- mars. 22. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Peter McEvoy og Davíð Arthur Friðriksson – 22. mars 2023
- mars. 21. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Stewart Cink ——– 21. mars 2023
- mars. 21. 2023 | 15:00 Next Golf Tour: Sigurður Arnar sigraði á Adare Manor!!!
- mars. 20. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Arjun Atwal ——– 20. mars 2023
- mars. 20. 2023 | 08:45 Champions: Ernie Els sigraði á Hoag Classic
- mars. 20. 2023 | 08:00 LIV: Danny Lee sigraði í LIV Golf – Tucson
- mars. 19. 2023 | 22:30 PGA: Taylor Moore sigraði á Valspar
- mars. 19. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Kristín Bachmann – 19. mars 2023
- mars. 19. 2023 | 14:00 PGA: Adam Schenk leiðir f. lokahring Valspar m/Fleetwood og Spieth á hælunum
- mars. 18. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (11/2023)
- mars. 18. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bragi Brynjarsson og Marousa Polias – 18. mars 2023
- mars. 18. 2023 | 15:00 LET: Pauline Roussin-Bouchard sigraði í einstaklingskeppni Aramco Team Series – Singapore