Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 19. 2015 | 14:00

Evróputúrinn: Rickie Fowler lauk keppni T-66 í Abu Dhabi

Ein skærasta ungstjarna Bandaríkjanna í golfinu, Nr. 10 á heimslistanum, Rickie Fowler fann sig ekki í fyrsta skiptið, sem hann tók þátt í Abu Dhabi HSBC Golf Championship.

Eftir byrjun sem lofaði góðu, 67 höggum, hrundi Rickie niður skortöfluna.

Hann lauk keppni í 66. sæti, sem hann deildi með þeim David Drysdale frá Skotlandi og Englendingnum Simon Khan.

Heildarskor Rickie var 2 undir pari, 286 högg (67 75 73 71) og því var nr. 10 á heimslistanum eiginlega búinn að spila sig úr öllum sigurlíkum á 2. degi, a.m.k. var skorið næstu 2 daga lítið betra; allt yfir 70.

Það munaði 17 höggum á heildarskori Rickie og sigurvegarans unga frá Frakklandi, Gary Stal.

„Þetta skiptir ekki svo miklu“ sagði Rickie eftir lokahringinn upp á 71 högg.  „Ég komst nokkrum sinnum ekki í gegnum niðurskurð á síðasta ári, en það snerist síðan í að verða besta árið á ferli mínum. Þetta er bara hluti af því að koma sér í gott form aftur og búa sig undir keppnistímabilið.“

Fowler snýr nú aftur á PGA Tour til þess að hefja keppni á nýja árinu, 2015, þar.

Hann sagði m.a.: „Það er mikil vinna framundan. Ég er svo sannarlega vonsvikinn með hvernig ég lék hér (í Abu Dhabi). Augljóslega byrjaði ég vel á fimmtudeginum, en tilfinningin var ekki góð seinni 3 dagana. Þannig að ég er svolítið vonsvikinn með alla þætti leiks míns. Ég á verk að vinna í næstu viku til þess að reyna að snúa hlutunum við fyrir næsta keppnistímabil þ.e. 2015 hluta þess.“

Hér má sjá lokastöðuna á Abu Dhabi Golf Championship SMELLIÐ HÉR: