Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 14. 2012 | 17:45

Evróputúrinn: Richard Finch og Branden Grace deila forystunni eftir 3.dag á Joburg Open

Branden Grace og Richard Finch deila forystunni eftir 3. dag Joburg Open, en það náðist að vinna upp mikið af töf undanfarinna daga á mótinu í dag, í  Royal Johannesburg and Kensington golfklúbbnum.

Tímafrekar tafir urðu á fyrstu tveimur dögunum vegna þruma og eldinga, sem þýddu að í gær höfðu sumir kylfingar jafnvel ekki byrjað á 2. hring sínum og þá varð að vinna upp í dag.

Richard Finch var t.a.m. bara búinn að spila 6 holur á 2. hring á Austur-vellinum þegar hann mætti til keppni snemma í morgun, en möguleikar hans á forystu stórjukust þegar hann fór holu í höggi! á 200 yarda par-3, 8. holunni.

Draumahöggið varð til þess að skorið á 2. hring Finch varð upp á 66 högg og komst hann, fyrir þær sakir í forystusæti eftir 2. dag ásamt landa sínum Robert Rock og  Suður-Afríkananum George Coetzee, en þeir leiddu þegar mótinu var frestað eftir 2. dag.

Þegar 3. hringur hófst setti Finch niður 7 metra fuglapútt á par-5 1. brautinni, en svipað fuglapútt og þetta rétt smaug framhjá á 4. holu.  […]

Finch spilaði fyrri 9 á 34 og var 3. hring frestað á ný þegar hann átti 4 holur óspilaðar.  Hann er ásamt Branden Grace í forystu á samtals -15 höggum undir pari, hvor, en munurinn á þeim er sá að Grace á bara 3 holur eftir óspilaðar.

í 3. sæti á samtals -14 undir pari er Suður-Afríkaninn George Coetzee, en hann á líkt og Finch, 4 holur eftir óspilaðar.

Fjórða sætinu deila síðan 3: Kanadamaðurinn Andrew Parr og Suður-Afríkumaðurinn Dawie Van Der Walt  á -12 undir pari, hvor og annar heimamaður Jbe Kruger er á sama skori en á 3 holur óspilaðar.

Til þess að sjá stöðuna eftir að 3. hring á Joburg Open hefir verið frestað smellið HÉR:

Heimild: europeantour.com (að hluta).