Alexander Levy sigurvegari Porsche European Open Evróputúrinn: Porsche European Open 40 ára!
Mót vikunnar Porsche European Open fagnar 40 ára afmæli nú í ár og hér að neðan er sagt frá helstu tölum á 40 ára ferli mótsins:
1978 – Þá fór fyrsta Porsche European Open fram. Það var bandaríski kylfingurinn Bobby Wadkins sem sigraði eftir bráðabana Bernard Gallacher og Gil Morgan í Walton Heath Golf Club.
5 – Fimm sinnum hafa þurft að fara fram bráðabanar til að skera úr um sigurvegara í Porsche European Open. Eftir að Wadkins hafði betur gegn Morgan og Gallacher árið 1978, var bráðabani milli Greg Norman og Ken Brown 1986 þar sem „hvíti hákarlinn“ sigraði, Bernhard Langer vann Barry Lane árið 1995, Alex Levy hafði betur gegn Ross Fisher árið 2016 og Jordan Smith hafði betur gegn Levy árið 2017.
31 – Á 40 árum hafa 31 sigurvegari verið í mótinu.
4 – Þessir 31 sigurvegarar hafa verið frá 4 mismunandi heimsálfum: Evrópu, Norður-Ameríku, Asíu og Ástralasíu.
14 -Sigurvegararnir hafa verið frá 14 mismunandi löndum: Ástralíu, Englandi, Frakklandi, Þýskalandi, Japan, Nýja-Sjálandi, Norður-Írlandi, Skotlandi, Suður-Afríku, Spáni, Svíþjóð, Thaílandi, Bandaríkjunum og Wales.
9 – Það hafa verið 9 risamótasigurvegarar, sem staðið hafa uppi sem sigurvegarar í Porsche European Open: Sandy Lyle 1979, Tom Kite 1980, Langer 1985 og 1995, Norman 1986, Ian Woosnam 1988, Faldo 1992, Darren Clarke 2001, Michael Campbell 2002 og Retief Goosen 2004.
3 – Seve Ballesteros varð þrívegis í 2. sæti í mótinu á 4 árum þ.e. milli áranna 1981 og 1984.
32 – Fyrstu 32 mótin fóru fram í Englandi og Írlandi.
13 – The K Club á Írlandi hefir verið mótshaldari mótsins oftar en nokkur annar golfstaður eða 13 sinnum á árunum 1995 and 2007.
21 – Per-Ulrik Johansson á mótsmetið 21 undir pari. Svíinn náði þessum árangri árið 1997.
10 – Er mesti munur á skori sigurvegara og þeirra er næstir komu. Þetta met setti Mathias Grönberg 1998. Grönberg var á 13 undir pari, og átti 10 högg á þá Miguel Angel Jiménez og Philip Price.
2 – Tveir hafa sigrað í mótinu ár eftir ár en það eru Johannson (1996 og 1997) og Lee Westwood (1999 og 2000).
Á mynd: Alexander Levy sigurvegari Porsche European Open 2017.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
