Evróputúrinn: Oliver Wilson sigraði á Alfred Dunhill Links Championship!
Það var Englendingurinn Oliver Wilson sem sigraði nú rétt í þessu á Alfred Dunhill Links Championship.
Lokahringurinn var leikinn á St. Andrews, en Dunhill mótið fór fram á 3 golfvöllum: Carnoustie, Kingsbarns og á Old Course St. Andrews, vöggu golfsins.
Wilson lék á samtals 17 undir pari, 271 höggi (64 72 65 70) og er þetta fyrsti sigur hans á Evrópumótaröðinni. Wilson á afmæli 14. september, verður 34 ára, eftir 9 daga og betri afmælisgjöf vart hægt að hugsa sér!!!
Í 2. sæti urðu nr. 1 á heimslistanum Rory McIlroy, Skotinn Richie Ramsay og Englendingurinn Tommy Fleetwood; allir 1 höggi á eftir Wilson, þ.e. á samtals 16 undir pari, hver.
Einn í 5. sæti varð síðan „heimamaðurinn“ Chris Doak frá Skotlandi á samtals 15 undir pari!
Til þess að sjá lokastöðuna á Alfred Dunhill Links Championship SMELLIÐ HÉR:
Sjá má hápunkta 4. dags á Alfred Dunhill Links Championship með því að SMELLA HÉR: (ATH!!! Verður fært inn þegar myndskeiðið er til!!!)
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
