Evróputúrinn: Nokkrar staðreyndir um sigur Jamie Donaldson
Eftir að hafa unnið glæstan sigur í Abu Dhabi HSBC Golf Championship þá er blaðafulltrúi Evrópumótaraðarinnar fljótur að draga saman nokkrar staðreyndir um sigurvegarann, Jamie Donaldson og sigur hans:
• Þetta er 2. sigur Donaldson á Evrópumótaröðinni í 268 mótum sem hann er búinn að taka þátt í.
• Hann fer í 2. sætið á peningalista Evrópumótaraðarinnar The Race to Dubai með €373,875 í vinningsfé.
• Donaldson fer úr 47. sætinu á topp-30 á heimslistanum.
• Þetta er 2. tímabilið hans í röð á Evróputúrnum, sem hann sigrar á; fyrri sigurinn kom á Irish Open 2012.
• Hann spilaði í 255 mótum á Evrópumótaröðinni þar til fyrsti sigurinn loksins kom 2012 þ.e. á Irish Open. En það varð skemmra á milli næsta sigurs hans – hann hefir aðeins spilað í 13 mótum frá því hann vann síðast.
• Jamie er fyrsti Wales-verjinn til þess að sigra í Abu Dhabi HSBC Golf Championship.
• Sigurinn er sá fyrsti í 7 skiptum sem Donaldson hefir tekið þátt í mótinu.
• Besti árangur hans fram til þessa í mótinu var T-11 árangur 2011.
• Þetta er í 2. skiptið í röð sem hann er meðal 10 efstu í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en hann var í 9. sæti, 2012, í DP World Tour Championship, Dubai. (Fram að því var 9. sæti, sem hann deildi með öðrum, besti árangur hans á Evrópumótaröðinni.
• Hann þurfti að vinna upp 2 högg og það er stærsti munur í sögu the Abu Dhabi HSBC Golf Championship, á eftir 3 höggum sem Paul Casey varð að vinna upp árið 2007.
• Þetta er í 2. skipti í ár sem sigurvegari hefir þurft að vinna upp högg til að sigra; Donaldson varð að vinna upp 2 högg; Louis Oosthuizen 5 högg í the Volvo Golf Champions.
• Hann er 2. kylfingurinn, sem er 37 ára og sigrar Abu Dhabi HSBC Golf Championship, þ.e. 37 ára og 92 daga. Hann er næstelsti sigurvegari mótsins, á eftir Chris DiMarco sem er elsti sigurvegarinn, en hann vann árið 2006, þá 37 ára og 152 daga gamall.
AÐRAR STAÐREYNDIR
• Þetta er 46. velski sigurinn á Evrópumótaröðinni.
• Donaldson er 7. velski kylfingurinn til þess að sigra oftar en 1 sinni á Evrópumótaröðinni.
• Donaldson er búinn að tryggja sér kortið sitt á Evrópumótaröðinni til loka ársins 2015.
• Hann hlýtur stærstu vinningsfjárhæð ferils síns €336,725 (58 milljónir íslenskra króna).
• Donaldson hlýtur þátttökurétt í WGC – Bridgestone Invitational 2013, WGC – HSBC Champions 2013 og í Volvo Golf Champions, 2014.
• Þetta er 6. sigur Donaldson á atvinnumannsferli hans.
* Donaldson er 3. kylfingurinn, sem áður spilaði á Áskorendamótaröðinni til þess að sigra á Evrópumótaröðinni 2013. Þessir 3 kylfingar eru: Scott Jamieson (Nelson Mandela Championship presented by ISPS Handa), Louis Oosthuizen (Volvo Golf Champions) og Jamie Donaldson (Abu Dhabi HSBC Golf Championship)
• Þetta er 310. sigur fyrrum kylfings af Áskorendamótaröðinni á Evróputúrnum.
Heimild: europeantour.com
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
