Evróputúrinn: Mótaskráin 2021
Mótaskrá Evrópumótaraðarinnar árið 2021 mun innihalda að lágmarki 42 mót í 24 löndum og Dubai Duty Free Irish Open mun sjá stóraukið verðlaunafé.
Á mótaskrá Evrópumótaraðarinnar, sem stendur yfir frá janúar til nóvember 2021, eru 18 mót sem snúa aftur og var annað hvort frestað eða aflýst árið 2020, vegna Covid-19.
Rolex serían (ens.: The Rolex Series) 2021 býður upp á fjögur aðalmót Evrópumótaraðarinnar sem eru dreifð á lykildaga í golfdagatalinu og með auknu verðlaunafé og stigum á stigalista Evrópumótarðarinnar.
Abu Dhabi HSBC meistaramótið (21. – 24. janúar), Aberdeen Standard Investments Scottish Open (8. – 11. júlí) og BMW PGA meistaramótið (9. – 12. september) verða nú með verðlaunafé upp á 8 milljónir Bandaríkjadala – hækkun um $ 1milljón.
Eins eru í boði 8.000 stig á stigalista Evróputúrsins (Race to Dubai) það sama og er í boði á heimsmótunum. Lokamót Evrópumótaraðarinnar mun eftir sem áður vera með mesta verðlaunafé í golfheiminum í einu stöku móti í boði eða 3 milljónir Bandaríkjadala – og að auki eru 12.000 stig í boði á stigalistanum, um 2000 stigum meira en er í boði á risamótum.
Verðlaunafé á Dubai Duty Free Irish Open og the Italian Open hækka bæði í €3milljónir, úr €1.25milljón og €1milljón.
Evrópumótaröðin hefur einnig staðfest að verðlaunafé í Bretlandi í júlí og ágúst verði aukið.
Verðlaun á nýjum mótum á Evrópumótaröðinni, sem fara fram á Tenerife og Gran Canaria í apríl verða hvor um sig 1,5 milljónir evra.
Verðlaunafé á Portúgal Masters, sem er á eftir þessum tveimur nýjum mótum, mun einnig aukast í 1,5 milljónir evra.
Verðlaunafé á Betfred British Masters hækkar í 2 milljónir evra úr 1,25 milljónum evra.
Samhliða hefðbundnum mótum i í Miðausturlöndum í byrjun árs, inniheldur áætlunin einnig endurkomu Íberíu sveiflunnar í apríl og Bretlands sveiflunnar í júlí og ágúst, sem kemur á eftir Dubai Duty Free Irish Open, the Aberdeen Standard Investments Scottish Open og Opna breska risamótinu (ens.:The Open Championship).
Einnig næst hvort öðru á mótaskránni eru the Open de España og the Estrella Damm N.A. Andalucía Masters á Spáni, fyrstu tvær vikurnar í október og Trophée Hassan II í Marokkó, vikuna þar á eftir.
Keith Pelley, framkvæmdastjóri Evrópumótaraðarinnar sagði: „Ég er ótrúlega stoltur að tilkynna alþjóðlegu dagskránna okkar 2021, sem verður til þess að við ferðumst um allar heimsálfur og um allan heim.„
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
