Ragnheiður Jónsdóttir | september. 2. 2018 | 15:00

Evróputúrinn: Matt Wallace sigraði á Made in Denmark

Það var enski kylfingurinn Matt Wallace sem sigraði á móti vikunnar á Evróputúrnum, Made in Denmark.

Wallace lék á samtals 19 undir pari, 269 höggum, líkt og landar hans Lee Westwood, Steven Brown og Jonathan Thomson.

Það varð því að koma til bráðabana milli þeirra 4 þar sem Wallace stóð uppi sem sigurvegari á 2. holu með fugl, en Steven Brown tapaði á parinu, eftir að Thomson og Westwood höfðu fallið úr keppni þegar á 1. holu.

Mótið fór fram á golfvelli Silkeborg Ry nálægt Århus í Danmörku, dagana 30. ágúst – 2. september 2018.

Til þess að sjá lokastöðuna á Made in Denmark SMELLIÐ HÉR:

Til þess að sjá hápunkta Made in Denmark SMELLIÐ HÉR: