Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 13. 2013 | 14:00

Evróputúrinn: Manassero með ás á 3. hring Opna skoska

Ítalski kylfingurinn Matteo Manassero fékk ás á 3. hring Opna skoska í dag.

Ásinn hjá honum kom á frægu par-3 8. holu Castle Stewart linksarans.

Par-3 8. holan á Castle Stewart linksaranum

Par-3 8. holan á Castle Stewart linksaranum þar sem Matteo Manassero fór holu í höggi í dag

Af hvítum teigum er 8. brautin 216 yarda (197, 5 metra) löng.

Við höggið notað Manassero blendingskylfu.

Manassero átti frábæra fyrri 9 þ.e. fékk auk ofangreinds áss, 2 fugla og var á 32 höggum eftir fyrri 9 – Á seinni 9 gekk hins vegar ekki eins vel – þó hann hafi fengið einn fugl enn á 11. tók hann hann aftur með skolla á 12. braut og síðan kom slæmur skrambi á 15. braut, þannig að hann lauk seinni 9 á 38 og samtals á 2 undir pari, 70 höggum, sem ekki dugar í menn á borð við heimamanninn Chris Doak sem leiðir með hringi upp á 6 undir pari, báða mótsdagana eða samtals 12 undir pari!