Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 27. 2012 | 17:15

Evróputúrinn: Luke Donald sigraði á BMW PGA Championship

Það fer svo að Luke Donald endurheimtir 1. sætið á heimslistanum n.k. mánudag.

Hann sigraði nefnilega á BMW PGA Championship – kom inn á 68 höggum í dag og spilaði samtals á -15 undir pari,  273 höggum (68 68 69 68)!!!

Í dag fékk Luke 5 fugla og 1 skolla.

Í 2. sæti 4 höggum á eftir Luke Donald urðu Skotinn Paul Lawrie og Englendingurinn Justin Rose. Þeir spiluðu báðir á samtals á -11 undir pari, 277 höggum ; Lawrie (69 71 71 66) og Rose (67 71 69 70).

Til þess að sjá úrslitin á BMW PGA Championship smellið HÉR: