Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 27. 2012 | 02:00

Evróputúrinn: Luke Donald er í 1. sæti fyrir lokadag BMW PGA Championship

Það eru miklar líkur á að Luke Donald endurheimti 1. sætið á heimslistanum, ef fram heldur sem horfir en hann trónir nú í 1. sæti fyrir lokahring BMW PGA Championship, sem spilaður verður á Wentworth golfvellinum á morgun.

Luke Donald er búinn að spila á samtals -11 undir pari, samtals 205 höggum (68 68 69).

Í 2. sæti tveimur höggum á eftir Donald eru landi hans Englendingurinn Justin Rose og enn öðrum 2 höggum á eftir er Írinn Peter Lawrie.

Fjórða sætinu deila síðan Suður-Afríkumennirnir Ernie Els, Richard Sterne og Branden Grace auk Skotans Paul Lawrie, allir á -5 undir pari.

Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag BMW PGA Championship smellið HÉR: