Lee Westwood
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 7. 2012 | 14:15

Evróputúrinn: Lee Westwood í forystu á 2. degi Nordea Masters

Það er nr. 3 í heiminum, Lee Westwood,  sem er sem stendur í 1. sæti á Nordea Masters í Svíþjóð.  Nokkrir eiga eftir að ljúka leik þegar þetta er ritað (kl. 14:10), en að því að virðist aðeins einn sem gæti enn gert Lefty skráveifu þ.e. argentínski nýliðinn Emiliano Grillo, sem er að spila geysigott golf og er á -7 undir pari á 6. holu og á því enn 12 eftir óspilaðar og gæti með góðum hring vel komist yfir Lee.

Lee Westwood átti engu að síður glæsihring í dag upp á 64 högg, þar sem hann spilaði skollafrítt og fékk 8 fugla.  Samtals er Lee á 132 höggum (68 64). Þetta getur Lee Westwood þegar púttin eru ekki að stríða honum!

Til þess að sjá stöðuna þegar Nordea Masters er hálfnað SMELLIÐ HÉR: