Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 18. 2015 | 00:45

Evróputúrinn: Kóreanskur nýliði fékk ás á 3. hring í Abu Dhabi HSBC mótinu

Kóreanski nýliðinn An Byeong-hun var í frábæru formi á 3. hring Abu Dhabi HSBC Golf Championship og fór holu í höggi af 147 yarda (134 metra) færi með 9-járni á 15. holu 3, keppnisdag.

Þetta var 4. ásinn í þessari viku og allir á sömu holu.

Rory McIlroy náði ás á 2. keppnisdegi og Tom Lewis og Miguel Angel Jiménez náðu ásum á 1. hring.

An var að vonum ánægður með ásinn.

„Ég var að spila vel allan daginn, virkilega stöðugt, setja niður pútt vitið þið. Ég gæti e.t.v. hafa enn púttað betur því ég var svolítið pirraður að missa 4 metra pútt á síðustu holunni,“ sagði An glaður, og bætti við að hann hefði hækkað tíið aðeins þar sem flaggið var ekki á auðveldum stað þennan 3. keppnisdag í Abu Dhabi.