Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 22. 2012 | 19:45

Evróputúrinn: Joel Sjöholm leiðir þegar BMW International Open er hálfnað í Köln

Það er Svíinn Joel Sjöholm, sem leiðir á Gut Lärchenhof nálægt Köln í Þýskalandi, á BMW International Open, þegar mótið er hálfnað. Samtals er Joel búinn að spila á 11 undir pari, samtals 133 höggum (67 66).  Hann er einn í efsta sætinu.

Öðru sætinu deila 4 kylfingar, sem allir eru 2 höggum á eftir Sjöholm, búnir að spila á samtals 9 undir pari, 135 höggum hver. Þetta eru Englendingurinn Danny Willett, Írinn Paul McGinley, Fabrizio Zanotti frá Paraguay og Chris Wood frá Englandi.

Tveir deila síðan 8. sætinu á samtals 8 undir pari; Daninn Thomas Nörret og Indverjinn Shiv Kapur.

Til þess að sjá stöðuna að öðru leyti þegar BMW International Open er hálfnað SMELLIÐ HÉR: