Evróputúrinn: Ian Poulter efstur á Turkish Airlines Open – Hápunktar 2. dags
Ian Poulter er í efsta sæti í hálfleik Turkish Airlines Open, en hann átti frábæran 2. hring upp á 66 högg.
Samtals var Poulter því á glæsilegum 14 undir pari, 130 höggum (64 66) eftir 2. hring.
Poulter var þó ekki á besta skorinu á 2. hring; það var bandaríski kylfingurinn Peter Uhilein en hann lék á 65 höggum og kom sér þar með upp í samtals 138 högg og er T-11 eftir 2. dag.
Í 2. sæti á eftir Poulter, þ.e. heilum 6 höggum á eftir, á samtals 137 höggum voru 6 kylfingar: Miguel Angel Jimenéz sem var í 1. sæti eftir 1. dag en fylgdi frábærum fyrsta hring sínum upp á 63 höggum eftir með 10 högga sveiflu þ.e. hring upp á 73 högg; Shane Lowry, Brooks Koepka, Brendan Grace, Hennie Otto og Wade Ormsby.
Þrír kylfingar deildu 8. sætinu á samtals 137 höggum þ.e. Tyrrell Hatton, Danny Willett og Thongchai Jaidee.
Mikil rigning setti 2. hring úr skorðum en fresta varð leik og lauk síðustu leikjum ekki fyrr en fyrr í morgun.
Þriðji hringur er samt þegar hafinn nú og má fylgjast með stöðunni á Turkish Airlines Open með því að SMELLA HÉR:
Til þess að sjá hápunkta 2. dags á Turkish Airlines Open SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
