Evróputúrinn: Højgaard sigraði á Mauritius Open
Það var Daninn Rasmus Højgaard, sem sigraði á Afrasia Bank Mauritius Open.
Eftir hefðbundinn 72 holu leik í mótinu voru 3 kylfingar efstir og jafnir Rasmus Højgaard, Frakkinn Antoine Rozner og Renato Paratore frá Ítalíu, en allir höfðu þeir spilað á samtals 19 undir pari, hver.
Það þurfti því bráðabana til þess að skera úr um úrslit milli þessara þriggja. Paratore datt út þegar á 1. holu en einvígið mili hins unga Højgaard og Rozner fór á 3. holu, þar sem Højgaard stóð uppi sem sigurvegari!
Højgaard er 3. yngsti sigurvegari í sögu Evrópumótaraðar karla; var aðeins 18 ára, 271 daga ungur þegar hann vann fyrsta sigur sinn á mótaröðinni, í sínu 5. móti á mótaröðinni. Yngsti sigurvegari á Evópumótaröð karla er Matteo Manassero en hann var aðeins 17 ára 188 ungur þegar hann sigraði á Castello Masters, 2010, og sá næstyngsti er Danny Lee, frá Nýja-Sjálandi, en hann var 18 ára, 213 daga ungur, þegar hann sigraði á Johnnie Walker Classic 2009.
Sjá má lokastöðuna á Afrasia Bank Maruitius Open með því að SMELLA HÉR:
Mótið fór fram á Heritage GC, Heritage Bel Ombre, Máritíus, dagana 5.-8. desember 2019.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
