Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 25. 2018 | 22:30

Evróputúrinn: Harrington og Pavan efstir og jafnir í Prag

Það eru þeir Pádraig Harrington frá Írlandi og hinn ítalski Andrea Pavan, sem deila forystunni fyrir lokahringinn á D+D Real Czech Masters, sem er mót vikunnar á Evróputúrnum.

Báðir hafa þeir Harrington og Pavan spilað á 7 undir pari, 199 höggum; Harrington (66 68 65) og Pavan (65 69 65).

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG,  tók þátt í mótinu, en komst ekki í gegnum niðurskurð.

Til þess að sjá stöðuna á D+D Real Czech Masters SMELLIÐ HÉR:

Til þess að sjá hápunkta D+D Real Czech Masters SMELLIÐ HÉR: 

Í aðalmyndaglugga: Andrea Pavan.