Ragnheiður Jónsdóttir | september. 25. 2018 | 18:00

Evróputúrinn: Guðmundur Ágúst T-8 e. 1. dag Frillford úrtökumótsins

Atvinnukylfingarnir Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Andri Þór Björnsson, báðir úr GR, hófu í dag keppni í Abingdon í Englandi á Frillford Heath golfvellinum, þar sem fram fer 1. stigs úrtökumót fyrir Evrópumótaröð karla.

Guðmundur Ágúst er T-8 eftir 1. dag en hann lék 1. hring á 1 undir pari, 71 höggi. Glæsilegt!!!

Andri Þór átti ekki óskabyrjun en hann lék 1. hringinn á 7 yfir pari, 79 höggum og er T-104.

Efstu 25% fara á 2. stig úrtökumótsins.

Til þess að sjá stöðuna á Frillford úrtökumótinu SMELLIÐ HÉR: