Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 3. 2022 | 08:15

Evróputúrinn: Guðmundur Ágúst náði ekki niðurskurði á Investec South African Open meistaramótinu

Það var gríðarleg spenna hvort Guðmundi Ágúst Kristjánssyni tækist að ná niðurskurði á Investec South African Open meistaramótinu, en mótið var 2. mótið sem hann spilaði í með fullan keppnisrétt á Evróputúrnum.

Blása varð 2. hring af í gær vegna þrumuveðurs og eldinga á Blair Atholl Golf & Equestrian Estate, í Lanseria, Jóhannesarborg, þar sem mótið fer fram.

Guðmundur Ágúst átti þá bara eftir 1 holu óspilaða og var á samtals 2 undir pari, sem hefði nægt til þess að ná niðurskurði, að því gefnu að hann spilaði síðustu holuna á pari. Fyrri hringinn spilaði hann á 72 eða sléttu pari. Því miður fékk Guðmundur Ágúst nú rétt í þessu skolla á 9 holuna (síðustu holuna sína) og endaði því á 1 undir pari og náði ekki niðurskurði.

Mikið óskapleg vonbrigði hljóta þetta að vera, að vera svona ofboðslega nálægt því að komast í gegn!!!!

Til þess að sjá stöðuna á Investec South African Open meistaramótinu SMELLIÐ HÉR