Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 9. 2021 | 08:00

Evróputúrinn: Grant Forrest sigraði á Hero Open

Mót vikunnar á Evróputúrnum var Hero Open.

Mótið fór fram dagana 5.-8. ágúst í Fairmont St Andrews, St Andrews, Fife, Skotlandi.

Sigurvegari mótsina var heimamaðurinn Grant Forrest.

Forrest lék á samtals 24 undir pari, 264 högg (68 68 62 66).

Grant Forrest er fæddur 19. júní 1993 í Livingstone Bretlandi og því 28 ára. Forrest spilaði í bandaríska háskólagolfinu með liði University of San Diego, þar sem hann sigraði 4 sinnum í einstaklingskeppnum.  Hann gerðist atvinnumaður í golfi 2016. Forrest býr í North Berwick í Skotlandi og því var hann á heimavelli þegar hann sigraði í 1. móti sínu á Evróputúrnum.

Enski kylfingurinn James Morrisson varð í 2. sæti á samtals 23 undir pari, og hinn spænski Santiago Tarrio varð í 3. sæti á samtals 21 undir pari. Heimamenn vermdu síðan 4. og 5. sæti því David Law og Calum Hill urðu T-4 á samtals 20 undir pari.

Sjá má lokastöðuna á Hero Open með því að SMELLA HÉR: