Evróputúrinn: Grace vann golfsögulegan sigur í Qatar!
Branden Grace frá Suður-Afríku sigraði á Commercial Bank Qatar Masters, í Doha golfklúbbnum í Qatar í gær 30. janúar 2015, eftir stórglæsilegan lokahring upp á 69 högg.
Hann varð fyrsti kylfingurinn í golfsögunni til þess að verja titil sinn í Qatar Masters mótinu.
Grace hóf lokahringinn 2 höggum á eftir þeim kylfingi sem búinn var að vera í forystu allt mótið, Skotanum Paul Lawrie, sem átti afleitan lokahring upp á 78 högg meðan allir 4 hringir Grace voru á eða undir 70.
Sigurskor Branden Grace var 14 undir pari, 274 högg (70 67 68 69) og þetta var 7. sigur hans á Evrópumótaröðinni. Eftir hringinn sagði Grace m.a.: „Þetta er frábært. Mér er eiginlega orða vant. Það var stórt að koma hingað til að verja titilinn. Að ná því undir beltið að verja titilinn er nokkuð sem mig hefur dreymt um.„
Í 2. sæti, 2 höggum á eftir voru þeir Rafa Cabrera-Bello og Thorbjørn Olesen á samtals 12 undir pari, hvor.
Paul Lawrie hafnaði í 13. sæti e.t.v. viðeigandi ólukkutala!
Til þess að sjá hápunkta 4. hringsins á Qatar Masters SMELLIÐ HÉR:
Sjá má lokastöðuna á Qatar Masters með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
