Ragnheiður Jónsdóttir | október. 6. 2012 | 16:30

Evróputúrinn: Grace í forystu fyrir lokahringinn í Skotlandi

Nýliðinn suður-afríski, Branden Grace er í forystu fyrir lokahring Dunhill Links Championship í Skotlandi.

Hann er samtals búinn að spila á 20 undir pari, 196 höggum (60 67 69) og á 4 högg á þann sem næstur kemur, Danann Thorbjörn Olesen, sem spilaði hefir á samtals 16 undir pari, 200 höggum (63 69 68).

Ernie Els átti ekki nógu stór orð yfir landa sinn.  Hann sagði m.a. eftir 3. hring Grace: „Ég man eftir þegar hann vann  South African Open árið 2007 og hann var topp áhugamaður. Hann hefir alltaf verið gæðakylfingur og spilar á heimsvísu núna.“

Ef Grace sigrar á morgun á Dunhill Links er þetta 4. sigur hans á nýliðaári sínu á Evrópumótaröðinni.  Sjá má samantekt Golf 1 um Branden Grace með því að SMELLA HÉR: 

Þriðja sætinu deila Svíarnir Fredrik Anderson Hed og Alexander Noren á 15 undir pari, 201 höggi; Anderson Hed (64 71 66) og Noren (64 72 65).

Til þess að sjá stöðuna á Dunhill Links Championship SMELLIÐ HÉR: