Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 20. 2014 | 08:00

Evróputúrinn: Fylgist með DP World Tour Championship

Glæsilegt lokamót Evrópumótaraðarinnar, DP World Tour Championship, hófst í dag í Dubaí.  Leikið er á Jumeirah Golf Estates í Dubaí.

Allir helstu kylfingar Evrópu eru með og nægir þar að nefna nr. 1 á heimslistanum Rory McIlroy, en einnig Henrik Stenson, Ian Poulter, Martin Kaymer, Lee Westwood o.fl., o.fl.

Nú snemma dags er það danski kylfingurinn Thorbjörn Olesen sem tekið hefir forystu.  Hann er kominn í 6 undir pari, eftir 10 holur – búinn að fá 6 fugla.  Vonandi að hann haldi út!!!

Til þess að fylgjast með  DP World Tour Championship á skortöflu SMELLIÐ HÉR: