Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 6. 2012 | 18:30

Evróputúrinn: Francesco Molinari sigraði á Open de España í Sevilla

Það var Ítalinn Francesco Molinari, sem bar sigurorð af öllum keppinautum sínum í Real Club de Golf de Sevilla með glæsilegum lokahring upp á 65 högg.  Hann tapaði hvergi höggi, spilaði skollafrítt og fékk 7 glæsifugla. Það var enginn sem átti svar við þessu skori Molinari.  Hann spilaði samtals á -8 undir pari, samtals 280 höggum (70 71 74 65).

Francesco Molinari átti 3 högg á þá 3 sem deildu 2. sætinu „heimamennina“ Pablo Larrazábal og Alejandro Cañizares og Danann Sören Kjeldsen.  Þeir spiluðu allir á samtals -5 undir pari, samtals 283 höggum.

Fimmta sætinu deildu síðan þeir Jorge Campillo og Daninn Thorbjörn Olesen á -3 undir pari.

Til þess að sjá úrslitin á Open de España smellið HÉR: