Evróputúrinn: Fótboltastjörnur í Pro-Am f. BMW PGA Championship
Fyrrum ensku landsliðsmennirnir í fótbolta Robbie Fowler, Paul Scholes og John Terry eru meðal frægra kylfinga sem munu spila í Pro-Am golfmóti fyrir BMW PGA Championship, sem fram fer miðvikudaginn 25. maí 2016.
Mótið fer fram í Wentworth Club, í England.
Terry, sem spilað hefir 78 landsleiki fyrir England og var stjóri Chelsea sem leiddi Chelsea til sigurs í Meistaradeildinni Champions League og Liverpool goðsögnin Fowler munu nú í fyrsta sinn taka þátt í mótinu. Fowler er jafnframt 6. besti markskorari í enska boltanum frá upphafi.
Terry er réttfættur en spilar golf örvhent. Hann segist oft fara með tvíburunum sínum Georgie og Summer út á golfvölinn, en mun væntanlega komast að því að það að tækla 7.302 yarda Vesturvöll Wentworth verður allt annað en barnaleikur.
Terry sagði: „Ég spila golf eins mikið og ég get í frítíma mínum ég elska leikinn og hann er frábær aðferð til að slaka á […]“
Öfugt við Terry þá er Fowler örvfættur en spilar golf rétthentur. Hann sagði m.a. um þátttöku sína í Pro-Am mótinu: „Frá því að ég dró mig úr fótboltanum hef ég varið miklum tíma á golfvellinum, en þetta er líklega sá viðburður sem ég hef verið spenntastur fyrir. Ég get ekki beðið eftir að sjá hversu góðir atvinnumennirnir eru í rauninni. Kannski að ég fái nokkur góð ráð.“
Scholes, er einn af bestu miðvallarleikmönnum kynsllóðar sinnar og hann tók þátt í fyrra í Pro-Am-inu ásamt fyrrum Manchester United félaga sínum Phil Neville og voru þeir tveir í ráshóp með Niall Horan söngvara One Direction og Rory McIlroy.
Verðlaunin féll þó ekki „liði“ Rory í skaut heldur liði Martin Kaymer.
Scholes sagði um þátttöku sína í mótinu í fyrra: „Síðasta ár var brilliant, það voru forréttindi að spila með Rory og við skemmtum okkur vel þannig að ég hikaði ekkert að taka þátt aftur.”
Nú í ár verður Scholes aftur með Horan og eins Arsenal og Wales miðvallarleikmanninum Aaron Ramsey, sem á heimsmet Guinness fyrir að halda golfbolta lengst uppi í 30 sek, sem og Justin Rose, sigurvegari Opna bandaríska 2013.
Aðrir frægir fótboltamenn sem þátt taka í Pro-Am-inu eru: Alan Shearer, Glenn Hoddle, Teddy Sheringham, Ian Wright and Jamie Redknapp.
Enn aðrir eru t.d. fyrrum markmaður Manchester United, Peter Schmeichel sem og Dwight Yorke , David Ginola og Gianfranco Zola.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
