Ragnheiður Jónsdóttir | september. 9. 2018 | 14:00

Evróputúrinn: Fitz sigraði í Crans

Það var enski kylfingurinn Matthew Fitzpatrick eða „Fitz“ eins og hann er kallaður sem stóð uppi sem sigurvegari í Omega European Masters og tókst því að verja titil sinn frá því í fyrra.

Fitz varð að hafa fyrir sigrinum því hann kom ekki fyrr en eftir bráðabana við danska kylfinginn Lucas Bjerregaard – reyndar á 1. holu bráðabanans, en báðir voru á samtals 17 undir pari eftir hefðbundið 72 holu spil.

Fitz fékk fugl en Bjerregaard tapaði á parinu.

Þetta var 6. sigur  Fitz á Evrópumótaröðinni, en hann er nýorðinn 24 ára – er fæddur 1. september 1994.

Til þess að sjá lokastöðuna á Omega European Masters SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá hápunkta lokahringsins á Omega European Masters SMELLIÐ HÉR: