Ragnheiður Jónsdóttir | september. 22. 2019 | 17:03

Evróputúrinn: Fisher m/albatross og vann sér inn BMW!

Ekki hefir borið mikið á enska kyfingnum Ross Fisher upp á síðkastið.

Hann tók þátt í móti vikunnar á Evróputúrnum; BMW PGA Championship.

Og viti menn Fisher fékk albatross á par-5 18. braut Wentworth í gær, laugardaginn 21. september 2019.

Hann notaði 4-járn í höggið góða .

„Þetta er besta golfhögg sem ég hef nokkru sinni hitt,“ sagði Fisher eftir hringinn. „Það voru 200 yardar að framlínu og 225 að pinna. Þetta var bara fullkomið 4-járns högg.“

Líklega hefir Fisher fundist höggið „fullkomið“ vegna þess að boltinn fór í holu og fyrir vikið vann hann sér inn BMW i8 Rosso Corsa, sem var $165,000 virði.

Sjá má albatross Ross Fisher með því að SMELLA HÉR: