Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 13. 2016 | 08:30

Evróputúrinn: Dodt efstur e. 1. dag á Máritíus

Það er ástralski kylfingurinn Andrew Dodt sem er efstur eftir 1. dag AfrAsia Bank Mauritius Open.

Dodt er e.t.v. ekki sá þekktasti á Evróputúrnum og sjá má eldri kynningu Golf 1 á kylfingnum Andrew Dodt með því að SMELLA HÉR: 

Spilað er á golfvelli Four Seasons GC á Anahita.

Dodt spilaði 1. hring á 6 undir pari, 66 höggum.

Fylgjast má með stöðunni en verið er að spila 2. hring með því að SMELLA HÉR:

Sjá má myndskeið frá hápunktum 1. dags með því að SMELLA HÉR: