Evróputúrinn: Derksen leiðir í Kína
Það er Hollendingurinn Robert-Jan Derksen sem tekið hefir forystu á Volvo China Open, sem er mót vikunnar á Evrópumótaröðinni og hófst í dag.
Derksen lék 1. hring á 6 undir pari, 66 höggum – en á hringnum fékk hann 8 fugla, 8 pör og 2 skolla.
Í 2. sæti 2 höggum á eftir Derksen komaThaílendingurinn Kiradech Aphibarnrat og tvær evrópskar Asíuhetjur: Brett Rumford sem sigraði á Ballantine´s Open í Icheon, Suður-Kóreu og Raphaël Jacquelin sem sigraði á Open de España nú nýverið, en hefir oftar en ekki verið í einum af efstu sætunum á mótum Evrópumótaraðarinnar í Asíu.
12 ára undrakylfingurinn Ye Wocheng, sem tekur þátt í 1. móti sínu á Evrópumótaröðinni kom í hús í dag á 7 yfir pari, 79 höggum og deilir 140. sætinu af 156 keppendum. Hann kemst eflaust ekki í gegnum niðurskurð, en þátttakan í mótinu er lærdómsrík og fer bara í reynslubankann. Að vera 12 ára og brjóta 80 er svolítið afrek út af fyrir sig, að gera það á móti annarrar stærstu golfmótaraðar heims er glæsilegt og þannig er einnig framtíð Ye í golfinu björt og glæsileg!
Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag Volvo China Open SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

