Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 24. 2012 | 22:00

Evróputúrinn: Danny Willett sigraði á BMW International Open í Köln eftir maraþon umspil

Það var Englendingurinn Danny Willett sem stóð uppi sem sigurvegari á BMW International Open, sem fram fór á Gut Lärchenhof, rétt fyrir utan Köln. Eftir hefbundnar 72 spilaðar holur var allt í járnum milli þeirra Willett og Ástralans Marcus Fraser.  Báðir voru búnir að spila á 11 undir pari, 277 höggum. Því þurfti að koma til umspils milli þeirra tveggja og var par-4 18. brautin spiluð aftur og aftur þar til niðurstaða fékkst.  Það var ekki fyrr en í 4. skiptið að Willett fékk par og Fraser skolla að úrslit fengust.

Í 3. sæti urðu Írinn Paul McGinley, Englendingurinn Chris Wood og Spánverjinn Gonzalo Fdez-Castaño aðeins 1 höggi á eftir.

T-6 varð, já sjaldséðir hvítir hrafnar urðu Henrik Stenson og Þjóðverjinn Marcel Siem.

Til þess að sjá úrslitin að öðru leyti á BMW International Open SMELLIÐ HÉR: