Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 28. 2017 | 23:59

Evróputúrinn: Chesters efstur í hálfleik á Porsche Open – Hápunktar 2. dags

Það er Englendingurinn Ashley Chesters sem er efstur í hálfleik á Porsche European Open.

Hann er búinn að spila á 9 undir pari, 135 höggum (68 67).

Í 2. sæti, fæst á hæla Chesters eru Svíinn Jens Fabring og Siddikur Rahman frá Bangladesh, báðir á 8 undir pari, hvor.

Porsche European Open fer fram á Green Eagle golfvellinum í Hamburg, Þýskalandi.

Sjá má hápunkta 2. dags á Porsche European Open með því að SMELLA HÉR: 

Til þess að sjá stöðuna á Porsche European Open SMELLIÐ HÉR: