Birgir Leifur Hafþórsson verður með í Flórídaferðinni. Mynd: Golf 1.
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 28. 2018 | 19:50

Evróputúrinn: Birgir Leifur T-61 e. 3. dag Porsche mótsins

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur lék 3. hringinn á Porsche European Open mótinu í dag.

Birgir Leifur lék 2. hring á 3 yfir pari, 75 höggum.  Á hringnum fékk Birgir Leifur 6 skolla og 3 fugla.

Samtals hefir Birgir Leifur spilað á 1 yfir pari 217 höggum (72 70 75) og er T-61 þ.e. deilir 61. sæti.

Í efsta sæti fyrir lokahringinn, sem spilaður verður á morgunn eru Englendingurinn Richard McEvoy og hinn bandaríski Bryson DeChambeau, báðir á 12 undir pari, 204 höggum

Til þess að sjá stöðuna í mótinu SMELLIÐ HÉR: