Birgir Leifur Hafþórsson verður með í Flórídaferðinni. Mynd: Golf 1.
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2018 | 09:00

Evróputúrinn: Birgir Leifur T-55 e. 1. hring á Valderrama Masters

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, tekur þátt í móti vikunnar á Evróputúrnum, sem er Valderrama Masters.

Eftir 1. hring er Birgir Leifur T-55, en hann lék hringinn á 2 yfir pari, 75 höggum.

Þegar leik var frestað á 2. hring vegna veðurs var Birgir Leifur búinn að ljúka leik á 12. holu (en hann hóf leik á 1. holu á 2. hring) og var búinn að fá 3 fugla og 1 skolla.

Það er vonandi að það takist að ljúka 2. hring í dag annars er hætta á að allt mótið fari úr skorðum.

Sjá má stöðuna á Valderrama Masters með því að SMELLA HÉR: