Birgir Leifur Hafþórsson verður með í Flórídaferðinni. Mynd: Golf 1.
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 17. 2018 | 19:00

Evróputúrinn: Birgir Leifur T-29 e. 2. dag Nordea Masters

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, tekur þátt í móti vikunnar á Evróputúrnum, Nordea Masters.

Mótið fer fram á keppnisvelli Hills golfklúbbsins í Gautaborg, Svíþjóð.

Birgir Leifur lék 2. hring á sléttu pari, 70 höggum; fékk 3 fugla og 3 skolla.

Samtals hefir Birgir Leifur spilað á 3 undir pari 137 höggum (67 70) og er T-29 – flaug í gegnum niðurskurð, sem miðaður var við parið eða betra.

Efstir í hálfleik eru Scott Jamieson frá Skotlandi og Englendingurinn Paul Waring  – en báðir hafa spilað á 11 undir pari, hvor.

Sjá má stöðuna á Nordea Masters með því að SMELLA HÉR: