Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 9. 2018 | 22:00

Evróputúrinn: Birgir Leifur 1. maður á biðlista á Opna spænska

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, er fyrsti maður á biðlista á Opna spænska meistaramótið sem hefst á fimmtudaginn í Madríd á Spáni.

Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni sem er sterkasta mótaröð atvinnukylfinga í Evrópu.

Birgir Leifur fer til Madríd án þess að vera með tryggt sæti í mótinu.

Á þessu tímabili hefur Birgir Leifur leikið á tveimur mótum á Evrópumótaröðinni. Á ferlinum hefur Birgir Leifur leikið á 62 mótum á Evrópumótaröðinni, fleiri en nokkur annar íslenskur kylfingur.

Á árunum 2007-2009 var Birgir Leifur með keppnisrétt á Evrópumótaröðinni. Á þeim árum lék hann 18 mótum árið 2007, 8 mótum árið 2008 og 17 mótum árið 2009.

Texti: GSÍ