Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 28. 2012 | 18:00

Evróputúrinn: Bernd Wiesberger er sigurvegari á Lyoness Open

Það er Austurríkismaðurinn Bernd Wiesberger, sem sigraði á Lyoness Opení Atzenbrügg í Diamond CC.  „Heimamaðurinn“ (Wiesberger) átti glæsilegan lokahring, sem forystumaður allra 3 daganna á undan, Daninn Thorbjörn Olesen,  átti ekkert svar við.  Wiesberger kom inn á 65 höggum, fékk 8 fugla og 1 skolla.  Samtals lék Wiesberger á 269 höggum (71 66 67 66)

„Þetta er besti dagur lífs míns,“ sagði Wiesberger eftir hringinn. „Það virðist sem allt hafi farið eins og ég ætlaði mér sérstaklega á síðustu 2 holunum.  Það voru  frábært land og frábærir landar sem hvöttu mig áfram.  Ég er mjög stoltur af því að vera að feta í fótspor Brier (innskot: besti kylfingur Austurríkismanna í langan tíma). Ég er viss um að ég mun ekki verða sá eini sem sigrar á heimavelli.“

Wiesberger átti 2 högg á þá sem deildu 2. sætinu Írann Shane Lowry og Frakann Thomas Levet. Lowry og Levet voru báðir á 16 undir pari, samtals 271 höggi; Lowry (70 68 68 66) og Levet (65 70 69 68).

Í 4. sæti var Svíinn Rikard Karlberg á samtals 15 undir pari, 273 höggum (70 67 66 70).

Það var síðan ekki fyrr en í 5. sæti sem Daninn ungi og efnilegi Thorbjörn Olesen kom, en leikur hans því miður hrundi í dag eftir frábært gengi fyrstu 3 dagana, allt í samræmi við tísku þessa árs í golfinu. Olesen lék á 74 höggum í dag en dagana á undan var skorið allt undir pari, 66 68 68.   Í dag  fékk Olesen hins vegar fugl og 3 skolla, ótrúlegt!

Til þess að sjá úrslitin á Lyoness Open að öðru leyti SMELLIÐ HÉR: