Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 3. 2015 | 22:00

Evróputúrinn: Aphibarnrat sigraði í Skotlandi!

Kiradech Aphibarnrat frá Thaílandi sigraði á Saltire Energy Paul Lawrie holukeppninni í Skotlandi í gær.

Hann sigraði Robert Karlson frá Svíþjóð 1&0.

Hinn 26 ára Aphibarnrat átti 3 holur þegar aðeins átti eftir að spila 4 holur, en tapaði síðan á 15., 16. og 17. holu áður en hann hélt haus á 18. holu og tryggði sér 3. titil sinn á Evróputúrnum.

Um sigur sinn sagði Aphibarnrat m.a.: „Ég var að slá vel og hitti svo vel á fyrri 9 en tapaði síðan svolítið af orku og stjórn.“

Ég byrjaði að „púlla“ nokkur dræv en ég verð að segja að ég púttaði vel í dag og sökkti mikið af mikilvægum púttum – sérstaklega sigurpúttið sem var mjög stutt en það var frábært að sjá á eftir því í miðja holuna.“

Ég var ekki með miklar væntingar í þessari viku en kom bara hérna og reyndi að njóta reynslunnar af því að spila í Skotlandi,“ sagði Aphibarnrat loks, ánægður.

Til þess að sjá lokastöðuna á Saltire Energy Paul Lawrie holukeppninni SMELLIÐ HÉR:

Til þess að sjá hápunkta lokahrigs Saltire Energy Paul Lawrie holukeppninni SMELLIÐ HÉR: