Evróputúrinn: Aguilar sigraði í Singapúr
Það var Felipe Aguilar frá Chile sem stóð uppi sem sigurvegari á móti vikunnar á Evróputúrnum, The Championship at Laguna National, í Laguna National G&CC, í Tampines, Singapúr.
Þetta er fyrsti sigur Aguilar á Evróputúrnum.
Hann var að vonum kátur með sigurinn og sagði m.a. að honum loknum: „Í gær (þ.e. laugardag) átti ég ekki góðan hring og þegar maður dettur svona langt aftur þá telur maður sig ekki eiga sjéns,“ en hann var í forystu þar til hann fékk skramba á 13. holu eftir að fara í vatn. „Í dag var eftir 9 holur var ég 2 höggum á fetir og vissi að ég yrði að kafa djúpt inn í sjálfan mig og slá boltann með bestum hætti í hvert skipti og slá í hvert sinn á pinna.“
„Að fara 8 undir á síðustu 9 er ansi sterkt sérstaklega þegar ég náði þessu á 18. holu. Það var mjög, mjög sérstakt,“ sagði Aguilar, sem var með 6 fugla og 1 örn (á 18.) á síðustu 9 í mótinu!!!
„Það var mjög sérstakt að ljúka mótinu svona,“ sagði Aguilar, sem það var svo sannarlega!!!
Sigurskor Aguilar var 22 undir pari, 266 högg (65 67 72 62).
Í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir voru Bandaríkjamaðurinn David Lipsky og Daninn Anders Hansen, báðir á 21 undir pari, 267 höggum; Lipsky (64 68 70 65) og Hansen (67 66 67 67).
Í 4. sæti varð Indverjinn Rahil Gangjee á samtals 19 undir pari og í 5. sæti varð Englendingurinn Chris Wood á samtals 18 undir pari.
Til þess að sjá lokastöðuna á The Championship at Laguna National í Singapúr SMELLIÐ HÉR:
Til þess að sjá hápunkta lokahringsins á The Championship at Laguna National í Singapúr SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
