John Daly
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 23. 2018 | 22:30

Evróputúrinn: 4 efstir og jafnir e. 1. dag D+D Real Czech Masters

Það eru 4 kylfingar sem eru efstir og jafnir eftir 1. dag móts vikunnar á Evróputúrnum, D+D Real Czech Masters.

Spilað er í Albatross golfstaðnum í Tékklandi.

Það eru þeir Thomas Pieters frá Belgíu, John Daly frá Bandaríkjunum, JÁ JOHN DALY!!!, enski kylfingurinn Callum Tarren og Gavin Green frá Malasíu, sem eru efstir og jafnir.

Þeir hafa allir spilað á 8 undir pari, 64 glæsihöggum!!!

Birgir Leifur Hafþórsson okkar, atvinnukylfingur úr GKG,  er meðal keppenda og hann kom í hús í dag á 2 undir pari, 70 höggum – fékk 3 fugla og 1 skolla; er sem stendur T-65 og verður að halda vel á spöðunum til þess að komast gegnum niðurskurð á morgun!

Til þess að sjá stöðuna að öðru leyti SMELLIÐ HÉR: 

Sjá má hápunkta 1. dags á D + D Real Czech Masters með því að SMELLA HÉR: