Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 2. 2018 | 08:00

Evróputúrinn: 4 efstir eftir 1. hring Fiji Int.

Í dag hófst á Fiji eyjum, Fiji International mótið sem styrkt er af Fiji Airways, en mótið er hluti af Evróputúrnum.

Mótið fer fram á golfvelli Natadola Bay golfklúbbsins.

Fjórir kylfingar deila efsta sætinu: Ben Campell, Nick Cullen, Jarryd Felton og Andrew Dodt, allir frá Ástralíu.

Allir léku þeir 1. hring á 5 undir pari, 67 höggum.

Sjá má stöðuna á Fiji International með því að SMELLA HÉR: