Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 9. 2012 | 17:30

Evrópumótaröðin: Lee Westwood sigraði á Nordea Masters

Það var nr. 3 á lista yfir heimsins bestu kylfinga, Lee Westwood, sem sigraði á Nordea Masters mótinu í dag.

Samtals spilaði Lee á 19 undir pari, samtals 269 höggum (68 64 68 69).  Í dag fékk hann 2 fugla, 1 skolla og glæsiörn á par-5 12. brautina á golfvelli Bro Hof Slott golfklúbbsins.

Slíkir voru yfirburðir Westwood að hann átti 5 högg á þann sem næstur kom Ross Fisher, en hann spilaði á samtals 14 undir pari, 274 höggum (70 68 65 71).

Til þess að sjá úrslitin á Nordea Masters SMELLIÐ HÉR: