
Evrópumótaröðin: 6 eru í efsta sæti þegar Opna sikleyska er hálfnað – David Lynn, Jamie Donaldson, Peter Lawrie, Pelle Edberg, Maarten Lafeber og Simon Wakefield
Það eru hvorki fleiri né færri en 6 sem deila efsta sætinu á Opna sikileyska þegar mótið er hálfnað á Verdura Golf & Spa Resort á Sikiley. Þessir 6 eru forystumaður gærdagsins, Írinn Peter Lawrie, Svíinn Pelle Edberg, Walesverjinn Jamie Donaldson, Hollendingurinn Maarten Lafeber og Englendingarnir David Lynn og Simon Wakefield. Allir forystumennirnir hafa samtals spilað á -8 undir pari, samtals 136 höggum. Sá sem var á besta skorinu í dag var Svíinn Pelle Edberg, en hann kom í hús á 66 höggum, fékk 6 fugla, 2 skolla og glæsilegan örn á 11. braut.
Geta mætti þess að Simon Wakefield er sá sem var í efsta sæti á lokaúrtökumóti Evrópumótaraðarinnar 2010, sem fram fór á PGA Catalunya vellinum. Þetta er í fyrsta skipti í lengri tíma sem hann er að blanda sér í toppbaráttuna.
Síðan kemur annar hópur 7 kylfinga sem deilir 7. sætinu aðeins 1 höggi á eftir forystunni: Danirnir Thorbjörn Olesen og Sören Kjeldsen, Englendingurinn Sam Hutsby, Garth Mulroy frá Suður-Afríku, Julien Gurerier frá Frakklandi, Shane Lowrie frá Írlandi og Richard Green frá Ástralíu.
Já, það er mannmargt á toppnum á Sikiley og enginn sérstakur að skara fram úr nema ef vera skyldi Matteo Manassero, sem er ekkert að eiga neitt sérlega gott mót, spilaði báða dagana á 72 höggum eða sléttu pari. Hann lenti í 96. sæti af 144 og náði ekki niðurskurði. Hann er á leiðinni heim til Veróna. Sýnir að menn eru sjaldnast spámenn í eiginn heimalandi!
Til þess að sjá stöðuna þegar Opna sikileyska er hálfnað smellið HÉR:
- ágúst. 13. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (32/2022)
- ágúst. 13. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Ben Hogan og Garðar Rafn Halldórsson – 13. ágúst 2022
- ágúst. 13. 2022 | 15:00 Evróputúrinn: Haraldur Franklín á -1 á ISPS Handa World Inv. e. 3. dag
- ágúst. 12. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Birgit Henriksen – 12. ágúst 2022
- ágúst. 11. 2022 | 18:00 GSÍ: Fjöldi kylfinga á Íslandi aldrei verið meiri
- ágúst. 11. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Helga Laufey Guðmundsdóttir – 11. ágúst 2022
- ágúst. 10. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ellý Steinsdóttir – 10. ágúst 2022
- ágúst. 9. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Erna Elíasdóttir —– 9. ágúst 2022
- ágúst. 9. 2022 | 14:00 Ágúst Ársælsson klúbbmeistari í Svíþjóð
- ágúst. 8. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Webb Simpson —— 8. ágúst 2022
- ágúst. 8. 2022 | 08:00 Evróputúrinn: Callum Shinkwin sigraði á Cazoo Open
- ágúst. 7. 2022 | 20:00 AIG Women’s Open 2022: Ashleigh Buhai sigraði!!!
- ágúst. 7. 2022 | 17:30 Íslandsmótið 2022: Kristján Þór og Perla Sól Íslandsmeistarar 2022!!!
- ágúst. 7. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Andri Páll Ásgeirsson – 7. ágúst 2022
- ágúst. 7. 2022 | 15:15 Áskorendamótaröð Evrópu: Guðmundur Ágúst lauk keppni T-3 og Bjarki T-35 á Vierumäki Finnish Challenge