Evróputúrinn: Bernd Wiesberger sigraði á Ballantine´s
Það var Austurríkismaðurinn Bernd Wiesberger sem sigraði á Ballantine´s Championship á Blackstone golfvellinum í Icheon í Seúl, Suður-Kóreu. Austurrískur sigur staðreynd… og fyrsti sigur Wiesberger, sem hins vegar hefir áður sigrað tvívegis á Áskorendamótaröðinni!!!
Wiesberger hélt 5 högga forystu sinni, sem hann hafði fyrir lokadaginn. Hann spilaði samtals á -18 undir pari, samtals 270 höggum (72 65 65 68).
Eftir sigurinn sagði Wiesberger m.a. eftirfarandi: „Ég reyndi bara að njóta þess að spila og átti 3 bestu hringi ævinnar. Ég reyndi að forðast skolla og tókst það nokkuð, sem var frábært. Planið var að ná inn á flatir á tilskyldum höggafjölda eins oft og mögulegt var og reyna að setja niður púttin, en þau duttu síðan í lokinn. Ég var ekki taugaóstyrkur. Það var ansi taugatrekkjandi móment á 12. braut en ég náði frábæru chippi og pútti fyrir pari, en síðustu 3-4 holurnar reyndi ég bara að njóta þess að spila. Þegar ég flýg heim í kvöld er ég ansi viss um að ég fái mér skot af Ballantine´s í Emirates biðsal flugstöðvarinnar.“
Í 2. sæti varð Skotinn Richey Ramsay á samtals -13 undir pari og í 3. sæti urðu Frakkinn Victor Dubuisson og Ástralinn Marcus Fraser á -11 undir pari samtals, hvor.
Í 5. sæti urðu síðan Spánverjinn Miguel Angel Jiménez og Englendingurinn Anthony Wall á samtals -10 undir pari.
Til þess að sjá úrslitin á Ballantine´s Championship smellið HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
