Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 26. 2014 | 07:00

EuroPro: Ólafur Björn á 73 á 1. degi

Ólafur Björn Loftsson, NK, tekur þátt í móti á EuroPro mótaröðinni sem fram fer á Frilford Heath golfvellinum, en mótið hófst í gær.

Ólafur Björn lék á 1 yfir pari, 73 höggum og er í  66. sæti af 164 þátttakendum.

Sjá má stöðuna eftir 1. dag á Frilford Heath með því að  SMELLA HÉR:  

Á facebook síðu sína skrifaði Ólafur Björn eftirfarandi um 1. dag mótsins:

„Ég spilaði fremur varfærnislega þar sem ég var að sjá völlinn í fyrsta skipti. Ég var að keppa á æfingadeginum (mánudag) og völlurinn var lokaður í gær vegna Pro-Am móts. Ég var á tveimur höggum undir pari eftir 13 holur og á góðu róli en ég var smá klaufi undir lokin og fékk þrjá skolla. Í heildina var spilamennskan nokkuð góð þótt skorið hefði mátt vera betra. Það kemur á morgun. Fer út í síðasta ráshóp kl. 14:40.“