Sandra Gal
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2012 | 15:00

Er Sandra Gal „heitasti“ kvenkylfingurinn?

Nú nýlega valdi Golf Digest þýska, fyrrverandi W-7 módelið, Söndru Gal, sem spilar á LPGA (og varð m.a. í 5. sæti á LPGA KEB Hana Bank Championship í Suður-Kóreu í dag 🙂 ) heitasta kvenkylfinginn.

Sandra Gal

Ýmsir golffréttamiðlar standa með reglulegu millibili fyrir samkeppni af þessu tagi og gildir þá einu hvort valinn er „heitasti“ kvenkylfingurinn eða kynþokkafyllsti karlkylfingurinn.  Oft er það svo að lesendur fá að velja í atkvæðagreiðslu á netinu, en svo var ekki i þessu óformlega vali Golf Digest.

Diora Baird

Því hefir Edward nokkur Jnaro tekið sér stílvopn í hönd, óánægður með val Golf Digest og hvernig að kosningunni var staðið.  Hann bendir a.m.k. á 5 kvenkylfinga sem að hans mati séu mun „heitari“ en Gal; en það eru Anna Rawson, Natalie Gulbis, Diora Baird, Blair O´Neal og Michelle Wie. Sýnist sitt hverjum enda smekkur manna mjög misjafn – spurningin er líka hvort verið er að velja „heitan“ kylfing sem jafnframt er GÓÐ í golfi, en af ofangreindu 5 er einungis Wie (og e.t.v. Gulbis), sem skín í stjörnutakta af og til innan vallar og eru hinar 3-4 mun síðri og aðallega þekktar fyrir að taka sig vel út á vellinum.

Til þess að sjá grein Jnaro á frummálinu (ensku) SMELLIÐ HÉR: