
EPD: Stefán Már (58. sæti) og Þórður Rafn (88. sæti) hafa lokið 1. hring á Amelkis Classic
Í dag byrjaði í Amelkis í Marrakesh, í Marokkó Amelkis Classic mótið á EPD-mótaröðinni þýsku. Meðal þátttakenda eru Stefán Már Stefánsson, GR og Þórður Rafn Gissurarson, GR.
Stefán Már lék á +3 yfir pari, 75 höggum í dag. Stefán byrjaði á 10. teig og fékk frekar dapra byrjun tvo skolla sem hann tók aftur með fugli á 18. braut. Á 11. braut fékk hann skramba, síðan fylgdu 2 skollar og hann lauk hringnum með glæsierni á par-4, 6. brautinni. Vonandi tekur Stefán Már arnartilfinninguna með sér á 2. hring á morgun og rústar honum! Eftir 1. dag deilir Stefán Már 58. sæti með öðrum.
Þórður Rafn spilaði á +5 yfir pari, 77 höggum, fékk 5 skolla og deilir 88. sæti.
Það eru 40 eftstu sem komast í gegnum niðurskurð. Í efsta sæti eftir 1. dag er heimamaðurinn Younes El Hassani, sem kom í hús á glæsilegum 62 höggum.
Golf 1 óskar þeim Stefáni Má og Þórði Rafni góðs gengis á morgun!
Til þess að sjá stöðuna á Amelkis Classic eftir 1. dag smellið HÉR:
- mars. 26. 2023 | 23:24 PGA: Sam Burns sigraði í WGC-Dell holukeppninni
- mars. 21. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Stewart Cink ——– 21. mars 2023
- mars. 21. 2023 | 15:00 Next Golf Tour: Sigurður Arnar sigraði á Adare Manor!!!
- mars. 20. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Arjun Atwal ——– 20. mars 2023
- mars. 20. 2023 | 08:45 Champions: Ernie Els sigraði á Hoag Classic
- mars. 20. 2023 | 08:00 LIV: Danny Lee sigraði í LIV Golf – Tucson
- mars. 19. 2023 | 22:30 PGA: Taylor Moore sigraði á Valspar
- mars. 19. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Kristín Bachmann – 19. mars 2023
- mars. 19. 2023 | 14:00 PGA: Adam Schenk leiðir f. lokahring Valspar m/Fleetwood og Spieth á hælunum
- mars. 18. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (11/2023)
- mars. 18. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bragi Brynjarsson og Marousa Polias – 18. mars 2023
- mars. 18. 2023 | 15:00 LET: Pauline Roussin-Bouchard sigraði í einstaklingskeppni Aramco Team Series – Singapore
- mars. 17. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Tumi Hrafn Kúld – 17. mars 2023
- mars. 16. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Vincent Tshabalala og Guðný Ævarsdóttir – 16. mars 2023
- mars. 15. 2023 | 18:00 Evróputúrinn: Jorge Campillo sigraði á Magical Kenya Open