Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 28. 2014 | 07:00

EPD: Þórður Rafn náði niðurskurði

Þórður Rafn Gissurarson, GR tekur þátt í  Gut Bissenmor Classic meistaramótinu sem er hluti af EPD mótaröðinni.

Mótið fer fram í Bad Bramstedt í Þýskalandi og stendur dagana 26.- 28. ágúst 2014.

Þórður Rafn náði niðurskurði í gær en hann lék á 3 yfir pari (72 73) en það var nákvæmlega það sem þurfti til að komast gegnum niðurskurð í mótinu.

Á 2. hring var Þórður Rafn með 2 fugla og 4 skolla en á þeim fyrri með tvo fugla og 3 skolla.

Til þess að sjá stöðuna á Gut Bissenmor Classic mótinu eftir 2. dag   SMELLIÐ HÉR: